Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012

Það er að koma vor :)

Vá, hvílíkur munur... það eru margar ástæður fyrir því að ég hef ekki hlaupið í viku... færðin hefur verið ástæða nr.1.. En í gær kom vorblíða og nær allur snjórinn farinn :)

Við Vala hittumst og hlupum okkar kæra Hrafnistuhring. Að vísu voru smá hálkublettir en hvað um það, þetta var útsýnis og fjáröflunarhlaup að gæðum. Vonandi snjóar ekki meira :)

Hrafnistan 12,5 km í syngjandi gleði :) 


Í snjó og ófærð

Fyrsta hlaupið eftir heimkomu. Við Vala hittumst og hlupum okkar vanalega hring. Vindurinn var á móti okkur, frostið beit og skaflar og ruðningar héldu okkur vakandi. Það er langt síðan við höfum hlaupið saman. Við höfðum nóg að segja hvor annarri. Ég talaði út úr mér tennurnar... hehe

Á leiðinni til baka var vindurinn enn á móti - hvernig er þetta hægt.
Hrafnista 12,5 km  


Rock´N´Roll Phoenix Arizona 15.jan. 2012

Rock´N´Roll Arizona 2012 - Maniacs group picP.F. Chang's Rock 'n' Roll Arizona Marathon & Half Marathon, Phoenix, Scottsdale & Tempe, AZ USA, 15.jan 2012
http://arizona.competitor.com/

Klukkan vakti okkur kl 4:30 (bara lúxus)... ég svaf bara vel þessa nótt. Morgunmatur í rúminu og fastir liðir eins og venjulega við undirbúninginn fyrir hlaupið. Í fyrramorgun var frekar kalt áður en sólin kom upp svo ég tók með mér hlýrra utan yfir mig þegar við lögðum af stað rétt fyrir kl 6.

Rock´N´Roll Arizona 2012 - startiðVið gerðum ráð fyrir að fá ekki bílastæði nálægt og Lúlli þyrfti bara að sleppa mér út... en við vorum heppin - komum snemma og fengum stæði við götumæli rétt við startið.

Við gegnum á startið og fundum Maniac... og þegar við gengum á hitti-staðinn fyrir myndatökuna 6:45 - bættust stöðugt fleiri í hópinn. Ég kynntist nýjum og sá sem skráði mig í 50 States Club kom en hann er Maniac nr 141

Rock´N´Roll Arizona 2012 - markiðMaraþonið var ræst 30 mín of seint... engin skýring gefin. Brautin var tiltölulega slétt, lá frá Phoenix gegnum Scottsdale og markið í Tempe. Veðrið var mátulega hlýtt eftir að lagt var af stað og skýjað allan tímann. Þegar nokkur skref voru í mark komu nokkrir dropar. Allt var sem sagt í besta lagi, ég vel sofin og en algerlega æfingalaus og það dró mig niður. Þrátt fyrir æfingaleysið fékk ég ekki krampa og tók ekki Ibufen.

Þetta maraþon er nr 141,
Garmurinn mældi leiðina 42,4 km og tímann 5:55:48


Gögnin sótt í Phoenix Arizona

Arizona Jan 14.jan. 2012Rock´N´Roll Phoenix Arizona

Við keyrðum hingað í gær frá Santa Barbara, 10 tímar í allt, með stoppum og ruglingi í myrkri en við komumst alla leið heil. Við slöppuðum bara af eftir það.

Í morgun fórum við í morgunmat á Old Country Buffet... ekki slæmt að fá omilettu með alles.

Arizona Jan 14.jan. 2012Gögnin voru sótt fyrir maraþonið á morgun, keyrt á start og finish, síðan var keyptur morgunmatur í Walmart.

Eftir að við komum aftur á hótelið, tók ég saman hlaupadótið og svo er bara að hvíla sig. Hlaupið verður ræst kl.7:30 á morgun og Maniac-myndataka kl.6:45


Disney Marathon 8.jan 2012

Disney World Marathon & Half Marathon, 5K, Goofy Challenge, Orlando, FL USA
http://www.DisneyWorldMarathon.com

Disney Marathon 8.jan 2012Við létum klukkuna vekja okkur kl 2:30… Ég hafði sofið ágætlega en Lúlla leið eitthvað illa svo hann ákvað að verða eftir og koma seinna í markið með Eddu, Emil og Ingu Bjarteyju.
Þá voru það fastir liðir eins og venjulega, teypa tærnar, borða og raka saman dótinu, því ég hafði svo langan tíma á staðnum þar til startið yrði.

Markið í Disney 8.jan 2012Ég var lögð af stað kl 3:10 og mátti ekki vera seinni. Traffíkin var rosaleg enda 20 þús manns í maraþoninu. Mér var beint á ágætis bílastæði, nokkuð nálægt tjöldunum. Þá var að bera á sig sólarvörn, vaselín og klára að borða. Ég rölti inn á svæðið, það stóð á Facebook að Maniacs ætluðu að hittast fyrir hópmynd 4:15… ég missti af henni í gær, af því að ég sá þá enga Maniaca kl 4:15... En nú var einhver hópur mættur og myndinni reddað.

Disney marathon 8. jan 2012Fyrirkomulagið var eins í dag og í hálfa í gær, uþb 20 mín ganga á startið. Eftir ræsingu kl 5:40 liðu 30 mín þar til ég fór að hreyfast…

Ég lenti í ,,bás” með 5:30 hlaupurum og hljóp með þeim þar til á 14. mílu, þá varð ég að fara á klósettið og missti af þeim. Ég sá þau síðan mílu á undan mér þegar leiðin var fram og til baka á 21.mílu.

Disney Marathon 8.jan 2012Íslenska móttökunefndin sá mig síðan óvænt stuttu seinna og ég gat losað mig við dót. Þá var farið að hitna. Eftir það gekk ég heilmikið, æfingaleysið var farið að segja til sín. Ólíkt undanförnum æfingaleysis-maraþonum þá fann ég aldrei fyrir krampa í fótum og tók ekki Ibufen. Þetta þakka ég Magnesíum sprautunum sem ég fékk hjá Hallgrími á Selfossi.

Goofy - Disney 2012Íslenska móttökunefndin, Lúlli, Edda, Emil og Inga Bjartey, beið við markið og upplifði alvöru maraþon stemningu. Ég var að hlaupa Disney í þriðja sinn, en þetta er í fyrsta sinn sem ég hleyp Goofy (hálft og heilt og þriðja verðlaunapeninginn sem er sjálfur Guffi)... síðast þegar ég hljóp hérna (2009) var það hundraðasta maraþonið mitt – þetta er nr 140

Þetta maraþon er tileinkað fyrsta lang-ömmu-barninu mínu sem fæddist 1. jan sl. Ótrúleg krúsidúlla J

Maraþon nr 140, Garmurinn mældi tímann 5:53:27 og vegalengdina 42,72 km.


Hálft maraþon í Disney

7.jan. laugardagur
Ég vaknaði kl 2:45… vaknaði !!! ég hafði ekki hvílst mikið. Lúlli ætlaði ekki með mér í dag. Ég teypaði tærnar, fékk mér brauð og lagði af stað 3:15. Ég mátti ekki vera seinni, þetta er þvílíkt batterí – 16 þús manns að hlaupa og allir að koma á sama tíma.
Ég var blessuð, munaði engu að ég lenti í árekstri í bílaröðinni, og að fá ágætt bílastæði. Ég kom mér innfyrir, en fann enga Maniaca þar sem myndatakan átti að vera kl 4:15.

Í dag var hálfa maraþonið – hef ekki hlaupið hálft í 5-6 ár... það gekk betur en ég þorði að vona, bæði hef ég ekki getað æft nema 2svar í viku í snjónum síðustu 2 mánuði og svo var ég hálf veik síðustu vikuna áður en við fórum. Reyndi að hlaupa jafnt og æsa mig ekki með hinum.

21,5 km - 2:40:53 og bara sátt með það.


Gögnin sótt í Disney

Númerið sótt í Disney 20126.jan föstudagur
Við borðuðum morgunmat á IHOP, svona til tilbreytingar… 

Svo var bara að dingla sér aðeins áður en við Lúlli fórum að sækja gögnin í Disney…
Það var meiri steypan, svona er að lesa ekki leiðbeiningarnar áður en maður fer af stað... ég mundi bara að ég átti að fara út á exiti 67 í Epcot… við keyrðum um, lentum á mark-svæðinu sem sumir starfsmenn héldu að væri start-svæðið…. það virtist enginn vita neitt… en svo var það í ESPN World Wide Sports… auðvitað.

Expo - Disney 2012Loksins voru gögnin komin, "Guffi" kominn í hús… 3 bolir. Við fengum okkur Burger King og fórum á hótelið… ég tók saman hlaupadótið, stillti klukkuna á 2:45 og fór að hvíla mig.

Þetta verður fyrsta hlaupið mitt sem lang-amma Smile


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband