Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Hrafnistuhringur

Ég rétt hafðist út úr dyrunum, það er alltof gott veður. Ég hljóp minn kæra Hrafnistuhring í þvílíkri endemis blíðu og svitabaði. Ég hafði varla undan að þurrka svitann - sársveið í augun af saltinu. Ég var ekki eini skokkarinn í Firðinum frekar en vanalega...

Hringurinn mældist 12,5 km eins og áður... ég verð nú að fara að rifja upp Garðabæinn á næstunni... breyta aðeins til.


,,annar" í Tinnu

Hella og hjólaferð með Tinnu 28.7.2009;)... eins og annar í jólum... það var ákveðið að hjóla upp í Kaldársel og ganga síðan á Helgafell. Við fórum af stað hálf 10... Ferðin upp eftir gekk vel, við hjóluðum Hvaleyrarvatnsleiðina... við Kaldárselið hættum við við að ganga á Helgafell og skoðuðum hella í staðinn.

Við gengum um Kaldárselssvæðið, borðuðum nestið og tókum myndir. Síðan var hjólað heim á leið... aðra leið en við komum, við klöppuðum hestum og fl.

Hella og hjólaferð með Tinnu 28.7.2009Afi var búinn að baka muffinsbollur þegar við komum heim... en Tinna hafði verið svo dugleg að við hjóluðum út í sjoppu og keyptum fótboltamyndir - áður en við fórum inn og fengum okkur bollu. Við vorum búnar að hjóla og ganga 23,6 km samkvæmt garmin-úrinu.

Hella og hjólaferð með Tinnu 28.7.2009Á meðan við kjömsuðum á bollunum spurði ég Tinnu hvort við ættum að fara aðeins út að hjóla á eftir ??? Já, hún vildi það og aftur var lagt af stað... nú var hjólað um hverfið og út á róló... við fórum loks inn þegar það byrjaði að rigna kl 4:45 

Það er synd að segja að maður hreyfi sig ekki þessa dagana :)


Útivistardagur með Tinnu Sól

Ég er með barnabarn... Tinnu Sól. Hún kom með hjólið sitt svo hún gæti þjálfað mig á hlaupunum. Við fórum út í morgun... hún hjólaði og ég hljóp. Við fórum kringum Ástjörnina og Vallarhverfið... göngustígarnir voru ágætir en ómalbikað og frekar gróft á köflum... með ,, rannsóknar"-krókum tókst mér að merja út 10 km.

Síðan tók ég fram hjólið og við Tinna hjóluðum í viðbót 4,7 km saman um hverfið. 

Ekki var það nóg fyrir Tinnu, svo að eftir Bónusferð hjóluðum við aðra 5 km og hún prófaði öll leiktæki í hverfinu... Við fórum út kl 9:30 í morgun og vorum meira og minna úti til 4:15


Góður dagur með Þóru Hrönn

Hitti Þóru Hrönn og Haukahópinn kl 10... Við hlupum upp Áslandið, ofan við Setbergið út á Flóttamannaveg og svo niður göngustíginn inn í Garðabæ, þar vorum við Þóra Hrönn komnar inn í okkar gamla far, við tókum göngustíginn til baka framhjá Sorpu, undirgöngin hjá Kaplakrika, Flatahraun og Reykjavíkurveginn niður í bæ. Okkur finnst báðum mjög gaman að hlaupa meðfram sjónum. Við skildum við enda göngustígsins. Ég hljóp upp í Haukahús og tók svo lengingu heim til Bjargar að sækja Moggann... fékk 16 km út úr þessu.
Veðrið var frábært, sól, aðeins gola... Það var frábært að hafa hlaupafélaga.

Kaldur blástur

Nú er maður orðinn svolítið frekur á veðrið... það blés köldu á móti í Hrafnistuhringnum... svo ég var í síðum og síðerma eins og um hávetur... en það hlýnaði og við gömlu sundlaugina varð maður að fækka fötum - þó ekki svo mikið að ég þyrfti að veita vegfarendum áfallahjálp ;)

ég kom aðeins við í apótekinu - pantaði tásuplástur svo Hrafnistan lengdist um 300 metra, varð 12,8 km


Í brakandi blíðu, enn einn daginn

Ég hljóp út um 11 leytið... það var glampandi sól og hiti... en gola á köflum. Ég hitti og hljóp aðeins með Erlendi, það keyrði upp hraðann hjá mér. Það endaði því með að ég hljóp allan hringinn hraðar en vanalega.

Ég fór minn elskulega Hrafnistuhring með viðbót til að kíkja á páfagauk sem ég lít nú eftir... svo þessi dagur reiknast 13,2 km.


Brakandi blíða

Ég hljóp heim til Soffíu og hljóp svo 4 km með henni. Hún hafði ekki tíma fyrir meira. Það er brakandi blíða var sennilega 20°c hiti þegar við vorum á ferðinni. Síðan hljóp ég fram á aðra hlaupakonu og hljóp eitthvað með henni áður en ég snéri heim á leið.

Þetta þvers og kruss um bæinn varð að 13,4 km... bara ágætt í dag :) 


Laugavegurinn

Laugavegurinn er 50 km í loftlínu... og er ekki ,,talinn" lengjast nema um 10%. Hlaupið er sagt um 55 km. Ég veit ekki til að nákvæm mæling hafi verið gerð.
Ég hljóp Laugaveginn í fyrstu 9 skiptin en þá var ég ekki búin að fá mér garmin gps-úrið...

Kannski ég fari hann einhverntíma og mæli vegalengdina. Annars gæti ég trúað því að þó Laugavegurinn væri mældur nokkur ár í röð yrði mælingin sennilega aldrei nákvæmlega sú sama, því snjórinn spilar inní, hann getur sléttað leiðina og tekið af króka ofaní lægðir.


mbl.is Nýtt met í Laugavegshlaupi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í steikjandi sól

Ég reyndi að ná í Soffíu, en hljóp síðan ein aðeins breyttan Hrafnistuhring. Veðrið var dásamlegt steikjandi sól og hiti... eiginlega of gott til að hlaupa.

Hringurinn sem ég fór var 12 km og er ég ágætlega sátt við það... hefði svo sem getað farið lengra.


Málið er að hlusta á líkamann

Mér finnst ,,Sigurvegari" maraþonsins í kvennaflokki ekki alveg sangjarn í umsögn sinni. Við sem hlaupum ráðum hraða okkar í hlaupinu.
Ég hef tekið þátt í mörgum maraþonum erlendis og þar hafa menn örmagnast umvörpum, fólk hefur verið borið burt á börum, rúllað í hjólastólum eða stutt burt með poka í æð... og þrisvar hef ég verið í maraþonum þar sem menn dóu rétt fyrir innan marklínuna.

Fyrst og fremst verður fólk að hlusta á eigin líkama - það getur enginn annar gert fyrir mann.

Í hita eins og var á Akureyri er mesti vandinn að drekka rétt... erlendis er yfirleitt 1 míla á milli drykkjarstöðva og er þá auðveldara að drekka mátulega mikið, oft... en þegar langt er á milli stöðva er erfiðara að drekka nóg því það er vont að drekka mikið í einu.


mbl.is Ósátt við skipulag hlaupsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband