Ocean Drive Marathon NJ, 29.3.2009

Ocean Drive Marathon, New Jersey
sunnudaginn 29.mars 2009, kl. 9
http://www.odmarathon.org

Það er víst betra að hafa góðan tíma, þegar maður þarf að tékka sig út, bera sig út í bíl og keyra einhverjar mílur á áfangastað um nótt. Ég fór snemma að sofa, svaf ágætlega en var alltaf að vakna og vissi svo oft af mér. Klukkan var stillt á 4:30... Indverjinn var búinn að bjóða mér að mæta í morgunmat kl 5.

Fyrir start í OceanDriveMarathon.NJ.29.3.2009Ég talaði við Lúlla á msn á meðan ég teypaði tærnar á mér... en pakkaði svo öllu saman og var lögð af stað 6:15. Ég var mætt og fékk frábært bílastæði hálftíma áður en rútan keyrði keppendur frá markinu í Sea Isle City, kl 7:15... að startinu í Cape May.

Það var rigningar-þokusuddi og rok, fáninn var beinn út í loftið. Við fengum aðstöðu í hótel-andyri og þar fékk ég gefins svartan ruslapoka til að byrja í. Þarna frétti ég fyrir tilviljun að það mætti byrja kl. 8 og auðvitað þáði ég það. Þetta var mjög frumstætt allt, engin flaga og þeir sem ætluðu fyrr af stað, þurftu að skrifa sig niður, máttu ekki klára undir 5 tímum og það var ekki víst að drykkjarstöðvar væru opnar fyrsta klukkutímann.

Eftir hlaup, OceanDriveMarathon.NJ.29.3.2009Leiðin hefði verið mjög falleg á björtum sumardegi... en hlaupið var á eyjunum meðfram landinu og reglulega hljóp ég yfir brýr sem tengdu þær saman. Þetta er sumarleyfisparadís ríkisbubba, flott stórhýsi með sundlaugum, allt saman mjög vel hirt og snyrtilegt EN ALLT MANNLAUST. 
Ég hljóp mestalla leiðina með konu frá St.Luis og manni frá Argentínu. Þjónustan á leiðinni var frábær, nóg af vatni, orku og ávaxtabitum. Ég þjáðist af krampa í kálfum síðustu mílurnar en er ánægð með að hafa klárað hlaupið sem mældist 42,56 km. á 5:09:16 á mína klukku.
Maraþonið er nr. 104
New Jersey er 35. fylkið mitt - 15 eftir Joyful

Eftir að hafa nært mig aðeins, keyrði ég norður til Trenton, keyrði ca 50 mílum of langt norður, vegna mistaka. Garmurinn fann ekki heimilisfangið á hótelinu og þegar ég ætlaði að láta hann finna það eftir nafni, gekk það ekki heldur - ástæðan, það hét öðru nafni fyrir ári síðan og nýja nafnið var ekki komið inn á Garminn.

Rodeway Inn, 1132 Route 73, Mount Laurel, NJ. Us 08054
phone (856) 656 2000  Room 120

Ég var mikið fegin þegar ég komst loksins á hótelið, komst í samband við Bíðarann, sturtu og fékk mér að borða Cool 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl   Bryndís mín   til hamingju   með þennan   áfanga,   það var leiðinlegt

að heyra     með Lúlla ,ég var  að  hugsa  afhverju  Lúlli   færi ekki   með

þér , nú er skýringin  komin. ég man  að þú  sagðir mér  síðast þegar  við

    hlupum saman  að Lúlli   væri að fara   til læknis.

                                      hlakka   til að sjá   þig aftur góða  heimferð.

                                        þín hlaupavinkona   Soffía.

soffia kristinsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 08:28

2 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir, Marathon Maniac # 3942

Samkvæmt heimasíðu hlaupsins var tími minn 5:09:19, en tímataka var handvirk... ekki flaga.

Bryndis Svavarsdottir (F52)5:09:1937197 / 14F50-59Hafnarfirdi, Iceland

Bryndís Svavarsdóttir, Marathon Maniac # 3942, 31.3.2009 kl. 02:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband