Gögnin sótt í Ocean Drive Marathon, New Jersey

OceanDriveMarathon 29.3.2009Hlaupið er frá stað A-B. Byrjar í Cape May syðst í New Jersey og hlaupið meðfram ströndinni norður til Sea Isle City... Þar er markið.

Ég gisti í Marmora uppi á landi fyrir ofan Ocean City, ca 12 mílum frá markinu. Í dag renndi ég niður í Wildwood til að sækja gögnin. Þetta var lítið expo, 2 mínútur að fara hringinn og bolamátun innifalin.

Í Wildwood NJ 29.3.2009Það var rigningarúði í dag en á víst að vera betra á morgun.

Wildwood var gersamlega tómur bær, þ.e.a.s. nær mannlaus. Þeir einu sem eru á stjái, hugsa sennilega um eigur þeirra sem eru aðeins hérna hluta úr árinu. Hér er mótel við mótel, en lokað fyrir alla glugga og engir bílar. Hérna hefði Palli sko verið einn í heiminum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband