Mín að komast í gang aftur

Í þessu yndislega veðri er mín komin í gang aftur, búin að söðla reiðhestinn... í gær gleymdi ég mér alveg á hjólinu, hjólaði suður Reykjanesbrautina og kom heim kl 5... hélt ég hefði misst af Völu... ég er venjulega fyrir utan vinnuna hjá henni 4:45... en við náðum saman... og breyttum til, hlupum kringum Ástjörnina.  ég man ekki hvenær ég gerði það síðast. En þetta var kærkomin tilbreyting.

Hjólaði 20,3 km og hljóp með Völu... 7,2 km 

Í dag hjólaði ég í Reykjavík, þurfti að ná í pappíra inn í Háskóla og heimsótti pabba á Landspítalann í leiðinni. Veðrið var frábært, glampandi sól og blíða.

Hjólaði 33,1 km í dag :) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband